Um 3,2 milljónir manna dóu vegna loftmengunar á árinu 2010 að því er fram kemur í grein í læknatímaritinu Lancet, en árið 2000 var þessi tala aðeins 800 þúsund. Loftmengun er nú í fyrsta sinn orðin ein af 10 algengustu dánarorsökunum í heiminum. Þessi mikla fjölgun stafar öðru fremur af gríðarlegri aukningu bílaumferðar í fjölmennum borgum í Asíu. Heilsufarsáhrif af mengun samtímans eiga þó væntanlega eftir að koma fram af enn meiri þunga, svo sem vegna krabbameina sem gera ekki vart við sig fyrr en að allnokkrum árum liðnum.
(Sjá frétt í The Guardian í gær).

Birt:
18. desember 2012
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Sífellt fleiri deyja vegna loftmengunar“, Náttúran.is: 18. desember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/12/18/sifellt-fleiri-deyja-vegna-loftmengunar/ [Skoðað:1. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: