Gallabuxnaframleiðandinn Levi Strauss & Co. hét því sl. fimmtudag að fara í afeitrun, þ.e.a.s. að hætta að nota umhverfis- og heilsuspillandi efni í framleiðslu sinni. Með þessu bregst Levi’s við áskorunum nokkur hundruð þúsunda einstaklinga sem þrýst hafa á fyrirtækið síðustu 2 vikur að undirlagi umhverfisverndarsamtakanna Greenpeace undir yfirskriftinni „Go Forth and Detox“. Levi’s, sem er stærsti gallabuxnaframleiðandi í heimi, gengur með þessu í lið með 10 öðrum leiðandi fyrirtækjum í framleiðslu og sölu á fatnaði sem þegar höfðu brugðist við þessu kalli almennings. Í þeim hópi eru Zara, sem er stærsta fataverslunarkeðja í heimi, Nike, Adidas, Puma, H&M, Marks&Spencer, C&A, Li-Ning, Mango og Esprit.

(Sjá frétt á heimasíðu Greenpeace 13. desember).

Ljósmynd: Úr frétt á greenpeace.org.

Birt:
17. desember 2012
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Levi’s lýsir yfir afeitrun“, Náttúran.is: 17. desember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/12/17/levis-lysir-yfir-afeitrun/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: