Sex af hverjum tíu úðabrúsum með jólasnjó, glimmer og skrautflögum (d. konfetti) sem efnaeftilit Umhverfisstofnunar Danmerkur (Miljøstyrelsen) tók til skoðunar á dögunum reyndust innihalda ólögleg efni. Í flestum tilvikum var um að ræða gróðurhúsalofttegundir sem ekki er heimilt að nota í brúsum af þessu tagi eða þá mjög eldfim efni, svo sem lífræn leysiefni, sem geta skapað mikla hættu sé þeim úðað innanhúss. Gerð hefur verið krafa um að ólöglegu brúsarnir verði þegar í stað teknir af markaði. Sé fólk í vafa ætti það að nota brúsana utandyra og láta efnin þorna þar, láta brúsana ekki í hendur börnum, forðast nálægð við andlit, klæðast hönskum og gæta þess að opinn eldur sé hvergi nærri.

(Sjá fréttatilkynningu Miljøstyrelsen 10. desember).

Ljósmynd: Jólaspray, af Metroxpress.

Birt:
13. desember 2012
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Hættulegir jólaúðabrúsar“, Náttúran.is: 13. desember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/12/13/haettulegir-jolaudabrusar/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: