Matvæladagur MNÍ 2012 - Matvælaöryggi og neytendavernd
Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ) boðar til Matvæladags MNÍ þriðjudaginn 16. október næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík. Matvæladagurinn er árviss viðburður sem haldinn hefur verið frá árinu 1993 og er nú haldinn í 20. sinn. Í ár er lögð áhersla á ýmis málefni sem tengjast Matvælastofnun og hvetur stofnunin eftirlitsþega sína til að taka þátt. Meðfylgjandi er dagskrá og upplýsingar um matvæladaginn:
Með innleiðingu nýrrar matvælalöggjafar ESB er lögð aukin áhersla á ábyrgð framleiðenda á matvælaöryggi. Matvælaeftirlit skal jafnframt byggjast á áhættumati. Fyrr á árinu var mikil umræða í fjölmiðlum og víðar í tengslum við ákveðin mál sem upp komu í eftirliti í matvælaiðnaði og urðu uppspretta vangaveltna og umræðna um öryggi matvæla á Íslandi. Í framhaldi af því telur MNÍ að þörf sé fyrir ábyrga umræðu og aukna fræðslu til allra þeirra sem koma að slíkum málum og hefur því valið matvælaöryggi og neytendavernd sem yfirskrift Matvæladagsins í ár með von um að leggja með því sitt af mörkum til uppbyggilegra umræðna á opinberum vettvangi. Megininntak dagsins þetta árið er áhættumat í matvælaframleiðslu og eftirliti, ábyrgð framleiðenda og neytenda sjálfra á meðhöndlun matvæla. Einnig verður rætt um ábyrgð fjölmiðla í umfjöllun um matvæli og markaðssetningu þeirra.
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega og nýsköpunarráðherra, mun setja ráðstefnuna og fundarstjóri er Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís.
Við setningu ráðstefnunnar mun Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, afhenda Fjöregg MNÍ, en það er verðlaunagripur sem veittur er fyrir lofsvert framtak á sviði matvæla-framleiðslu og manneldis. Gripurinn er hannaður og smíðaður af Gleri í Bergvík og hefur frá árinu 1993 verið gefinn af Samtökum iðnaðarins.
Þátttöku á ráðstefnuna þarf að tilkynna á vefsíðu MNÍ, www.mni.is, en skráningu lýkur kl. 24:00, mánudaginn 15. október. Almennt þátttökugjald er 7000 kr., en nemar þurfa aðeins að greiða 3.500 kr.. Ráðstefnugögn og léttar veitingar eru innifaldar í verði en dagskráin stendur frá kl. 13:00 til 17:00 og er birt á heimasíðu MNÍ. Þar birtast einnig fréttir af ráðstefnunni þegar nær dregur svo og listi yfir þá sem kynna munu sínar vörur og rannsóknir á þessu sviði.
Matvæladagurinn er opinn almenningi og er áhugafólk um matvæli, næringu og neytendavernd hvatt til að mæta.
Birt:
Tilvitnun:
Fríða Rún Þórðardóttir „Matvæladagur MNÍ 2012 - Matvælaöryggi og neytendavernd“, Náttúran.is: 6. október 2012 URL: http://nature.is/d/2012/10/06/matvaeladagur-nmi-2012-matvaelaoryggi-og-neytendav/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 15. október 2012