Lífræn merking á matsölustöðum
Matsölustaðir í Noregi geta nú fengið sérstök merki til að sýna hversu mikið af hráefnum þeirra er lífrænt vottað. Til að fá gullmerki þurfa a.m.k. 90% af matnum sem keyptur er inn að vera með lífræna vottun. Silfurmerki fæst ef hlutfallið er a.m.k. 50% og bronsmerki við 15%. Merkingin er liður í að efla markað fyrir lífrænar vörur, en norsk stjórnvöld hafa sett sér það markmið að árið 2020 verði hlutfall lífrænna matvæla í Noregi komið í15%, bæði í framleiðslu og neyslu.
Sjá nánar í frétt á heimasíðu Debio 19. sept. sl.
Birt:
2. október 2012
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Lífræn merking á matsölustöðum “, Náttúran.is: 2. október 2012 URL: http://nature.is/d/2012/10/02/lifraen-merking-matsolustodum/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.