Slysagildra, mengun og sóðaskapur
Þessar myndir eru teknar í Mosfellsbæ á útivistarsvæði sem nýlega var tyrft. Á þeim má greinilega sjá að plastnet undir þökunum stendur út í loftið og veldur hættu fyrir dýr, fugla og ekki síst börn. Eins er þetta með afbrigðum ljótt að sjá.
Þótt netið gegni örugglega hlutverki við meðhöndlun á túnþökunum á meðan þær eru fluttar ætti að vera hægt að fjarlægja netið við lagninu þeirra. Eða nota net úr efni sem brotnar niður í náttúrunni á skemmri tíma en plastið. Það liggur ekki fyrir hvaða plast er í þessu neti en ætla má að niðurbrotið sé mælt í tugum ára að minnsta kosti eða jafnvel öldum.
Verktaka væri í lófa lagið að skera burt enda sem standa undan þökunum og skila þannig af sér þrifalegu verki.
Plast er mengandi og hefur slæm áhrif á náttúruna. T.d. hefur það hormónabreytandi áhrif sem geta valdið því að sumar tegundir þróa ekki karlkyns einstaklinga og verður þannig til þess að dýrategundir deyja út á menguðum svæðum.
Ljósmynd: Kristján E. Karlsson
Birt:
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Slysagildra, mengun og sóðaskapur“, Náttúran.is: 28. ágúst 2012 URL: http://nature.is/d/2012/08/28/slysagildra-mengun-og-sodaskapur/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.