Stikilsber (Ribes uva crispa / Ribes grossularia)Stikilsber hafa þann kost að fuglar láta þau að mestu í friði og hægt er að tína þau af jörðinni, ef þau hafa dottið af vegna ofþroskunar. Þau mygla þar ekki strax eins og önnur ber. Það nægir að setja þau í pott með helmingsmagni af sykri, kanelstöng og ögn af vatni og sjóða þangað til þykknar. Stikilsber þykja góð í chutney eða súrsætar samsuður. Englendingar munu ætíð hafa haft dálæti á stikilsberjum og hægt að læra margt af þeim varðandi notkun á villtum jurtum. Á breskum herragörðum og betri bæjum voru svokölluð stillrooms eða eimingarherbergi. Nokkurs konar vísir að smáapótekum þar sem vín voru eimuð, sápur og önnur hreingerningarefni útbúin, sárakrem soðin, saft sett á flöskur og þurrkaðar jurtir geymdar. Þessi uppskrift er komin erlendis frá og það má breyta henni á ýmsa vegu eftir því hvað til er hverju sinni.

Stilkilsberja-chutney
1 kg stikilsber
200 g laukur
450 ml gott edik
250 g rúsínur
2 tsk salt
2 tsk engiferduft (hægt er að bjarga sér með ferska rót)
2 tsk brúnkökukrydd
175 g sykur

Berin eru þvegin og hreinsuð og laukurinn saxaður. Ber og laukur sett í þykkbotna pott ásamt svolitlu af vatni, hitað að suðu og látið sjóða í 20 mínútur eða þar til berin eru byrjuð að fara í mauk. Vatni bætt í ef þarf svo að ekki brenni við. Síðan er helmingnum af edikinu bætt í pottinn ásamt rúsínum, salti og kryddi. Látið malla við vægan hita í 20 mínútur eða þangað til maukið er byrjað að þykkna. Þá er sykurinn settur í og afgangurinn af edikinu og hrært í þangað til sykurinn er uppleystur. Maukið er enn látið malla í 20 mínútur eða þar til það er hæfilega þykkt og hrært í öðru hverju. Sett í krukkur og látið standa í 3–4 vikur áður en það er notað.

Úr bókinni Ætigarðurinn - handbók grasnytjungsins eftir Hildi Hákonardóttur. 

Ljósmynd: Stikilsber, Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
1. september 2014
Tilvitnun:
Hildur Hákonardóttir „Stikilsber“, Náttúran.is: 1. september 2014 URL: http://nature.is/d/2007/11/09/slber-og-stikilsber/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. nóvember 2007
breytt: 1. september 2014

Skilaboð: