Fyrstu fyrirtækin fá Vakann
Þann 3. júlí sl. fagnaði Ferðamálastofa því að fyrstu íslensku fyrirtækin hafa lokið innleiðingu á Vakanum, nýju gæða- og umhverfiskerfi fyrir aðila í ferðaþjónustu. Fyrirtækin eru öll umsvifamikil á sviði íslenskrar ferðaþjónustu en þau eru: Elding hvalaskoðun, Bílaleiga Akureyrar – Höldur, Ferðaskrifstofan Atlantik og Iceland Excursions Allrahanda.
Auka öryggi og efla gæði
Vakinn felur í sér viðameiri úttekt á starfsemi íslenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu en áður hefur þekkst hér á landi. Kerfinu er ætlað að auka öryggi og efla gæði og fagmennsku á sviði ferðaþjónustu. Þau fyrirtæki sem óska eftir þátttöku í Vakanum þurfa að uppfylla auknar kröfur um gæði og öryggi, jafnt fyrir starfsfólk sem og viðskiptavini. Auk þess tekur Vakinn m.a. til aðbúnaðar, þjónustu við ferðamenn, þjálfunar starfsfólks og umgengni við náttúruna svo fátt eitt sé nefnt.
Að nýsjálenskri fyrirmynd
„Vinna við undirbúning Vakans hófst fyrir alvöru árið 2008 þegar Iðnaðarráðuneytið fól Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að vinna að gerð gæðakerfis. Óháð ráðgjafafyrirtæki var fengið til þess að taka út gæðakerfi víðs vegar um heim og niðurstaðan varð sú að byggja á nýsjálenska kerfinu Qualmark. Það hefur nú verið staðfært og aðlagað að íslenskum aðstæðum og fengið nafnið Vakinn“, segir Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri.
Skýrari stefna og aukin færni
Með innleiðingu Vakans munu aðilar í ferðaþjónustu geta markað sér skýrari stefnu og aukið færni sína við reksturinn. Þeir munu bæta öryggi og velferð gesta sinna sem og starfsmanna, auk þess sem þeir taka þátt í því að auka trúverðugleika íslenskrar ferðaþjónustu í heild. Verkefnið hefur verið unnið í náinni samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálasamtök Íslands og Nýsköpunarmiðstöð. Þannig hefur skapast breið samstaða innan ferðaþjónustunnar um þennan mikilvæga málaflokk.
Tvíþætt gæðakerfi og umhverfisviðmið í kaupbæti
Gæðakerfi Vakans er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða gæðaúttekt fyrir ferðaþjónustu aðra en gistingu og hins vegar stjörnuflokkun fyrir gististaði, svo sem hótel, gistiheimili, orlofshús, tjaldsvæði og fleira. Sá hluti verður innleiddur á næsta ári. Umhverfiskerfi Vakans stendur öllum þátttakendum til boða endurgjaldslaust.
Elding hvalaskoðun, Bílaleiga Akureyrar – Höldur, og Iceland Excursions Allrahanda sem eru þátttakendur í gæða- og umhverfiskerfi Vakans og Ferðaskrifstofan Atlantik er þátttakandi í gæðakerfi Vakans.
Lljósmynd: Frá afhendingu viðurkenninga Vakans. Talið frá vinstri: Steingrímur Birgisson, Bílaleiga Akureyrar – Höldur; Ólafía Sveinsdóttir, Ferðaskrifstofan Atlantik; Rannveig Grétarsdóttir, Elding hvalaskoðun; Rúnar Garðarsson, Iceland Excursions Allrahanda og Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.
Umhverfismerki Vakans er í þremur stigum; brons, silfur og gull. Hér á Vef Náttúrunnar eru áhersla lögð á að skrá þátttakendur sem uppfylla bæði gæða- og umhverfiskerfi Vakans en ekki þá sem aðeins uppfylla gæðkröfur Vakans.
Sjá þá aðila sem hafa fengið umhverfismerki Vakans hér á Grænum síðum.
Birt:
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „Fyrstu fyrirtækin fá Vakann“, Náttúran.is: 6. júlí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/07/05/fyrstu-fyrirtaekin-fa-vakann/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. júlí 2012
breytt: 6. júlí 2012