Hann er 16. mars og dánardagur Guðmundar Arasonar Hólabiskups hins góða. Guðmundur dó 1237, en árið 1315 voru bein hans tekin úr jörðu og lögð í skrín í Hóladómkirkju fyrir forgöngu Auðuns biskups rauða. Eftir það jukust mjög áheit á Guðmund góða og Guðmundardagur varð ólítill helgidagur, meðan pápíska ríkti. Eimdi raunar mun lengur eftir af því, þótt nú sé úr sögunni.

Birt:
16. mars 2012
Höfundur:
Árni Björnsson
Tilvitnun:
Árni Björnsson „Gvendardagur“, Náttúran.is: 16. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2007/04/11/gvendardagur/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 11. apríl 2007
breytt: 12. mars 2012

Skilaboð: