Náttúra Íslands og ESB
Græna netið, félag jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina stendur fyrir fundi undir heitinu Hvaða áhrif myndi aðild að ESB hafa á náttúru- og umhverfisvernd á Íslandi? á Sólon Íslandus, efri hæð þ. 28. febrúar frá kl. 12:00 til 13:00.
Þingmennirnir Mörður Árnason og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir ræða kosti og galla ESB aðildar fyrir umhverfi og náttúru Íslands á hádegisfundi Evrópuvaktar Samfylkingarinnar og Græna netsins á Sólon Íslandus 28. febrúar.
Fundurinn hefst kl. 12.00 og stendur í klukkustund. Fundarstjóri Dofri Hermannsson, formaður Græna netsins. Fundarmenn eru hvattir til að taka þátt og láta í ljós sínar skoðanir og bera fram fyrirspurnir.
Að vanda verður hádegisverðurinn á viðráðanlegu verði.
Birt:
Tilvitnun:
Græna netið „Náttúra Íslands og ESB“, Náttúran.is: 23. febrúar 2012 URL: http://nature.is/d/2012/02/23/nattura-islands-og-esb/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.