Íslenska Gámafélagið fagnar fyrst sorphirðufyrirtækja vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi en fyrirtækið hlaut á dögunum ISO 14001 vottun. Í tilefni þess bjóða öllum Íslendingum í pylsupartý og opið hús á laugardaginn milli 13:00-16:00.

Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins munu fræða fólk um flokkun, jarðgerð, metanbreytingar, metan, lífdísel, þann góða starfsanda sem ríkir hjá fyrirtækinu og margt fleira. Einnig verður margt í boði fyrir krakkana eins og hoppukastalar, rusla- og motorhjólarúntur, andlitsmálning, töfrabrögð og e.t.v. lætur ruslaskrímslið sjá sig.

Allir velkomnir!

Birt:
1. júní 2012
Tilvitnun:
Agnes Gunnarsdóttir „Opinn dagur Íslenska gámafélagsins 2. júní“, Náttúran.is: 1. júní 2012 URL: http://nature.is/d/2012/06/01/opinn-dagur-islenska-gamafelagsins-2-juni/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: