Snævarr Guðmundsson landfræðingur og leiðsögumaður er gestur Græna netsins, félags jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina á fundi í Golfskálanum á Seltjarnarnesi um myrkurgæði og ljósmengun. Snævarr hefur kannað ljós og myrkur að næturlagi á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og komist að því meðal annars að ljósmengun í einstökum sveitarfélögum er mest í Kópavogi, sem er þeirra upplýstast – en myrkrið er hinsvegar mest á Seltjarnarnesi og Álftanesi. Á svæðinu öllu er næturbirta, og þar með hulinn næturhiminn – frá fjórum til sjö sinnum meiri en á Þórshöfn, þar sem enn er stjörnubjart þegar vel viðrar að nóttu.

Líklega er höfuðborgin með grannbæjum eitt af upplýstustu byggðarsvæðum jarðar miðað við höfðatölu, og ekkert undarlegt við að Íslendingar vilji hafa ljós í skammdeginu. Ljósmengun fylgja hinsvegar ýmsir ókostir, þeirra mestur sá að næturhiminn hverfur og stjörnur sjást ekki fyrren talsvert utan við miðbæina. Kynslóðir borgarbarna alast því upp án þess að njóta stjarnanna – og fyrir ferðamenn dregur úr aðdráttarafli Reykjavíkur sem ævintýraborgar myrkurs og norðurljósa.
Margt má hinsvegar gera til að draga úr mengun af ljósum án þess að valda óþægindum fyrir umferð, atvinnulíf og sálarástand íbúanna, og er reynt víða erlendis. Hér heima standa Borgnesingar fremstir í flokki við að vinna gegn ofnotkun ljósa í byggð.

Fundur Græna netsins um verðmæti myrkursins verður haldinn laugardaginn 14. janúrar og hefst kl. 17:00, eftir sólsetur, í Golfskálanum á Seltjarnarnesi. Eftir fyrirlestur Snævars verður gengið út undir bert loft að líta á himinhnetti og borgarljós einsog veður leyfir.

Sjá staðsetningu á Já.is, smella hér.

Sjá viðburðinn á Facebbook.

Ljósmynd: Aurora Borealis, Árni Tryggvason.

Birt:
12. janúar 2012
Höfundur:
Græna netið
Tilvitnun:
Græna netið „Myrkurfundur Græna netsins - Hversu verðmætt er myrkrið? “, Náttúran.is: 12. janúar 2012 URL: http://nature.is/d/2012/01/12/myrkurfundur-graena-netsins-hversu-verdmaett-er-my/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: