Efnið skapar andann - vistvæn byggingarefni og áhrif þeirra á innivist og hönnun
Þann 24.maí næstkomandi stendur Vistbyggðarráð fyrir ráðstefnu um vistvæn byggingarefni. Ráðstefnan ber yfirskriftina, Efnið skapar andann. Vistvæn byggingarefni og áhrif þeirra á innivist og hönnun.
Ráðstefna er haldin á Hótel Reykjavík Natura, fimmtudaginn 24. maí frá kl. 9:00-13:00, en í tengslum við ráðstefnuna höfum við boðið framleiðendum og söluaðilum að kynna vörur sínar.
Á ráðstefnunni verður sjónum sérstaklega beint að notkun vistvæns byggingarefnis á Íslandi. Framboð á vistvænum vörum í verslunum er sífellt að aukast en gera þarf átak í bæði innflutningi en þó ekki síst framleiðslu vistvæns byggingarefnis. Þar getur verið um að ræða þróun og notkun á íslenskum efnivið eða jafnvel endurnýtanleg byggingarefni sem stundum felur í sér mikla nýbreytni í hönnun.
Ráðstefnan er sérstaklega ætluð þeim sem starfa í eða tengjast íslenskum byggingariðnaði, framkvæmdaraðilum sem og öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér sjálfbærnimarkmið og notkun vistvænna byggingarefna í tengslum við framkvæmdir og hönnun mannvirkja
Dagskrá:
08:30-09:00 Skráning og afhending gagna
09:00-09:10 Setning. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir
09:10-10:20 Vistvæn byggingarefni - hönnun og eiginleikar
- Ólafur Wallevik, verkfræðingur. Vistvænni steinsteypa
- Aðalheiður Atladóttir, arkitekt. Frá markmiðum til þróunar og niðurstaðna í hönnun framhaldsskóla
- Árni Friðriksson, arkitekt. Sesseljuhús og þróun vistvænna lausna á Sólheimum Umræður/fyrirspurnir
10:20-10:50 Kaffihlé - Kynningar framleiðenda og seljenda á vistvænum byggingarvörum.
10:50-11:40 Gamalt og grænt – notkun endurnýtanlegra byggingarefna
- Hjörleifur Stefánsson, arkitekt. Samþætting sjónarmiða minjaverndar og sjálfbærni
- Hannes Lárusson,myndlistarmaður.Timbur og torf–samruni lands og byggðar
- Umræður/fyrirspurnir
11:40-12.50 Vistvæn byggingarefni í íslensku samhengi
- Arnar Þór Jónsson, arkitekt. Vistvæn þjónustuhús fyrir ferðaþjónustuna
- Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, Umhverfisstofnun. Svansvottuð byggingarefni
- Kristín Þorleifsdóttir, verkefnisstjóri Vistmenntarverkefnisins. Miðlun þekkingar og reynslu í notkun vistvænna byggingarefna á Íslandi
- Umræður/fyrirspurnir
12:50-13:00 Samantekt/ráðstefnulok
Birt:
Tilvitnun:
Sigríður Björg Jónsdóttir „Efnið skapar andann - vistvæn byggingarefni og áhrif þeirra á innivist og hönnun“, Náttúran.is: 21. maí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/05/21/efnid-skapar-andann-vistvaen-byggingarefni-og-ahri/ [Skoðað:23. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.