Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um breytingu á lögum um upplýsingarétt um umhverfismál. Þar er lagt til að skerpt verði á frumkvæðis- og viðbragðsskyldu stjórnvalda til að veita almenningi upplýsingar um aðsteðjandi mengunarhættu eða umtalsverðar breytingar á umhverfi. Flutningsmenn auk mín eru þingmennirnir Skúli Helgason, Mörður Árnason og Birgitta Jónsdóttir.

Tilefni þessa frumvarps er díoxínmálið svokallaða frá síðasta ári þegar upp komst um mikla díoxínmengun frá nokkrum sorpbrennslustöðvum. Þá kom í ljós að opinberar stofnanir sáu lengi vel ekki ástæðu til aðgerða og að ekki þóttu efni til að upplýsa íbúa í næsta nágrenni við stöðvarnar um þá hættu sem fyrir hendi var. Viðbrögð kerfisins voru lengi vel bæði svifasein og ómarkviss, en allir vísuðu í gildandi lög og reglugerðir til varnar aðgerðarleysi sínu. Við vorum því harkalega minnt á mikilvægi þess að skerpa á viðbragðsskyldu stjórnvalda og opinberra stofnana gagnvart almenningi í umhverfismálum.

Í kjölfar fyrstu frétta af málinu ákvað umhverfisnefnd Alþingis að skoða nánar þá löggjöf um umhverfismál og upplýsingaskyldu stjórnvalda sem snýr að mengunarmálum. Ég tók að mér þetta verkefni og skilaði nefndinni greinargerð um það sem betur mætti fara í núgildandi löggjöf. Greinargerðina má nálgast á vef Alþingis (smella hér) . Niðurstaða mín varð sú að kveða þyrfti skýrar á um frumkvæðis- og viðbragðsskyldu stjórnsýslustofnana í íslenskri löggjöf og um rétt almennings til þess að vernda lífsgæði sín og heilsu.

Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu miða að því að treysta stöðu almennings gagnvart stjórnvöldum, herða á upplýsingaskyldu stjórnvalda og tryggja rétt fólks til að búa við heilsusamleg skilyrði og varðveita lífsgæði sín. Eins og sakir standa ber stjórnvöldum einungis að veita upplýsingar í umhverfis- og mengunarmálum "sé þess óskað". Við leggjum til að orðin "sé þess óskað" verði felld út úr 5. gr. núgildandi laga. Þá leggjum við til að við 10. gr. laganna bætist ný mikilvæg málsgrein sem hljóði svo:

"Stjórnvöldum er ævinlega skylt að hafa frumkvæði að upplýsingagjöf sé ástæða til að ætla að veruleg frávik vegna mengandi efna í umhverfi geti haft í för með sér hættu eða skaðleg áhrif á umhverfi eða heilsu fólks eða dýra."

Í núgildandi lögunum (23/2006) kemur fram að markmið þeirra sé að tryggja almenningi aðgang að upplýsingum um umhverfismál sem stjórnvöld hafa yfir að ráða eða geymdar eru fyrir þeirra hönd, til að stuðla að sterkari vitund um málefni á umhverfis sviði, frjálsum skoðanaskiptum og aukinni þátttöku almennings í töku ákvarðana um umhverfismál. Lögin voru sett til innleiðingar á Evróputilskipun um almennan aðgang að upplýsingum um umhverfismál og í þeim er áhersla á rétt almennings til að fá upplýsingar og skyldu stjórnvalda til að veita upplýsingar og miðla þeim greiðlega og skipulega. Að mati flutningsmanna er hins vegar hvorki í lögunum né tilskipuninni beinlínis kveðið á um frumkvæðisskyldu stjórnvalda, þar sem þau fela ekki í sér bein fyrirmæli til stjórnvalda um að veita óumbeðnar upplýsingar eða viðvaranir vegna mengunarhættu.

Bent hefur verið á að tilskipun Evrópusambandsins sé ekki afdráttarlaus en flutningsmenn telja að hana megi þó skilja á þann veg að stjórnvöld hafi frumkvæðisskyldu í upplýsingagjöf þegar mengunarhætta er til staðar. En þó að sá andi svífi yfir vötnum teljum við óhjákvæmilegt að skerpa frumkvæðisskylduna með beinum lagafyrirmælum.

Í þessu samhengi má benda á að í tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá er gert ráð fyrir nýju ákvæði (35.gr.) um upplýsingaskyldu stjórnvalda varðandi ástand umhverfis og náttúru og áhrif framkvæmda þar á. Í því umrædda ákvæði eru stjórnvöld skylduð með beinum hætti til að upplýsa um aðsteðjandi náttúruvá, svo sem um umhverfismengun. Þetta styður enn frekar við það að lagaumhverfið verði lagað að þessu sjónarmiði.

Ljósmynd: Ólína Þorvarðardóttir, af kvennaslodir.is.

Birt:
16. nóvember 2011
Uppruni:
Fréttablaðið
Tilvitnun:
Ólína Þorvarðardóttir „Upplýsingaskylda stjórnvalda í umhverfismálum“, Náttúran.is: 16. nóvember 2011 URL: http://nature.is/d/2011/11/16/upplysingaskylda-stjornvalda-i-umhverfismalum/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: