Úrval af Fair trade (Sanngirnisvottuðum/Réttlætismerktum) vörum á Íslandi er því miður ekki enn samkeppnishæft við önnur lönd en meðlimir Breytanda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, stormuðu í verslanir í fyrravor og gerðu úttekt. Finna má Fair trade vörur í öllum helstu matvöruverslunum og er árangursríkast að leita þeirra á lífræna ganginum. Einnig má finna  Fair trade vörum í nokkrum fataverslunum og svo leynast þær líka á kaffihúsum og í leikfangabúðum. Vörutalning var framkvæmd sl. vor og hér má sjá afraksturinn.

Matvöruverslanir:

  • Hagkaup (19 vörur – mikið úrval af tei, hrásykur, hrískökur KitKat, ís o.fl.)
  • Fjarðarkaup (19 vörur – kaffi, te, hrásykur, orkustykki o.fl.)
  • Heilsuhúsið (14 vörur – te, mango chutney, orkustykki o.fl.)
  • Krónan (13 vörur – ávaxtasafi, kaffi, te, hunang, kakó, brjóstsykur o.fl.)
  • Nóatún (12 vörur – hrískökur, hunang, hrásykur, kaffi, súkkulaði o.fl.)
  • 10-11 (10 vörur – mikið úrval af tei, hrásykur, KitKat og hrískökur)
  • Maður lifandi (10 vörur – te, mango chutney, hrískökur og orkustykki)
  • Nettó (8 vörur – te, hrískökur, KitKat og hunang)
  • Bónus (7 vörur – te og hrásykur)
  • Samkaup (6 vörur – te, hrásykur og hrískökur)
  • Kostur (3 vörur – kaffi)
  • Kvosin (1 vara – hrásykur)

Fataverslanir:

  • Topshop (10 vörur – bolir og leggings)
  • Debenhams (8 vörur – karlmannsföt)

Annað:

  • Söstrene Grene (te, hrískökur og hrísgrjón)
  • Rúmfatalagerinn (ein tegund af viskastykkjum)
  • Náttúran.is (þar má finna Fair Trade búð og deild til hægri á forsíðunni)
  • Lítil í upphafi (leikfangabúð við Skólavörðustíg)
  • Barnabúðin Garðastræti 17
  • Gónhóll Eyrarbakka
  • Kolors.is (handunnar töskur og veski)
  • Te og kaffi
  • Litla kistan (netverslun með barnavörur)

Breytandur hvetja alla til að hafa samband með því að senda póst á changemaker@changemaker.is ef þið komið auga á Fairtrade vörur í verslunum sem við höfum ekki tilgreint hér. Rétt er að benda á að í vörutalningunni var lögð áhersla á vörur sem bera Fairtrade merkið en ekki vörur með sambærilega vottun, s.s. Hand in Hand eða UTZ.

Birt:
16. maí 2011
Höfundur:
Breytendur
Uppruni:
Breytendur
Tilvitnun:
Breytendur „Fairtrade vörur á Íslandi“, Náttúran.is: 16. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/16/fairtrade-vorur-islandi/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 13. nóvember 2011

Skilaboð: