Ný skoðanakönnun Capacent Gallup fyrir öll helstu náttúruverndarsamtök landsins* sýnir að stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands nýtur mikils stuðnings meirihluta landsmanna. Spurt var: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands? Helstu niðurstöður eru: 56% aðspurðra eru hlynntir stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, 17,8% aðspurðra eru andvígir en 26,2% eru hvorki hlynntir né andvíg.

Hugmyndin um þjóðgarð á miðhálendi Íslands á vísan stuðning meðal allra aldurshópa og íbúa allra landshluta. Mestur er stuðningurinn í Reykjavík en þar segjast 64% vera hlynnt stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Minnstur er stuðningurinn í Suðurkjördæmi en þar segist þó rétt innan við helmingur vera hlynntur stofnun þjóðgarðs eða 45%.

Í lok næstu viku rennur út frestur til að skila athugasemdum við drög að þingsályktun um Rammaáætlun. Eftirtalin náttúruverndarsamtök telja að niðurstaða skoðanakönnunarinnar sé til marks um skýran vilja almennings til þess að vernda miðhálendið sem eina óraskaða heild; að öræfi landsins sé auðlind sem sífellt verður dýrmætari.

* Eftirfarandi samtök standa að skoðanakönnunni:

Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Félag um verndun hálendis Austurlands
Framtíðarlandið
Fuglavernd
Áhugahópur um verndun Jökulsánna í Skagafirði
Landvernd
Náttúruvaktin
Náttúruverndarsamtök Íslands
Náttúruverndarsatök Suðurlands
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands
Náttúruverndarsamtök Vestfjarða
NAUST (Náttúruverndarsamtök Austurlands)
Sól á Suðurlandi
SUNN (Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi)

Frekari upplýsingar veitir, Árni Finnsson, sími 8972437.

Birt:
2. nóvember 2011
Höfundur:
Árni Finnsson
Tilvitnun:
Árni Finnsson „56% almennings styðja hugmyndina um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands“, Náttúran.is: 2. nóvember 2011 URL: http://nature.is/d/2011/11/02/56-almennings-stydja-hugmyndina-um-stofnun-thjodga/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: