Í nýjastu tölublaði tímaritsins Newsweek eru grænar lausnir og aðferðafræði aðalmálið. Bandaríkjamenn hafa tekið umhverfismálin upp á sína arma. Umhverfisvæn hönnun, uppfynningar og lífsstíll eru nú „það heitasta“. Græna bylgjan er mótsvar við sofandahætti stjórnvalda á sviði orku- og umhverfisverndarmála um áratuga skeið og hinn almenni ameríkani sér ástæðu til að taka á málunum nú, enda ekki undir huliðshjálmi lengur, að framtíð okkar á þessari jörð er hreint og beint í húfi, verði ekkert gert til að stemma stigu við mengun og losun gróðurhúsalofttegunda. Í blaðinu er fjallað um vindmillur, sólarrafhlöðu-handtöskur, Willie Nelson (BioWillie), agnarsmáa bíla (TrafficTango), orkusparnaðar-uppfynningar framsækinna arkitekta, hönnun úr endurunnum efnum t.a.m. veggeinangrun úr gömlum gallabuxum, o.m.fl. Myndin er af forsíðu Newsweek. Sjá nánar um grænkunina.

Birt:
11. júlí 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ameríka grænkar - Newsweek“, Náttúran.is: 11. júlí 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/20/amerika_graen/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 20. mars 2007
breytt: 4. maí 2007

Skilaboð: