Nagladekk eru óleyfileg undir bifreiðum eftir 15. apríl 2009. Nagladekk spæna upp malbik hundrað sinnum hraðar en önnur dekk og eru áhrifamikill valdur að svifryksmengun í Reykjavík. Svifryk fór fjórum sinnum yfir heilsuverndarmörk í marsmánuði og hefur farið sex sinnum yfir á árinu. Ökumenn eru hvattir til að skipta um hjólbara við fyrsta tækifæri.

Sjá nánari upplýsingar um svifryk og nagladekk á vef Reykjavíkurborgar.

 

Birt:
3. apríl 2009
Höfundur:
Gunnar Hersveinn
Tilvitnun:
Gunnar Hersveinn „Tími naglanna líður hjá“, Náttúran.is: 3. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/03/timi-naglanna-liour-hja/ [Skoðað:26. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: