Fundaröð um atvinnulíf og umhverfismál - Útstreymi frá álverum
Rætt verður um útstreymi frá álverum á Íslandi, stöðu mála og horfur á fundi hjá Samtökum atvinnulífsins þriðjudaginn 21. nóvember. Framsögur flytja Guðrún Þóra Magnúsdóttir leiðtogi umhverfismála hjá Alcan og Óskar Jónsson framkvæmdastjóri hjá Norðuráli. Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins Borgartúni 35, 6. hæð og hefst klukkan 8:30 og verður lokið klukkan 10:00. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
Birt:
21. nóvember 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fundaröð um atvinnulíf og umhverfismál - Útstreymi frá álverum“, Náttúran.is: 21. nóvember 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/16/fundarod_atvinlif/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. mars 2007
breytt: 30. apríl 2007