Úti að aka í náttúru Íslands
8. stefnumót umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða.
Erindi:
- „Umfang utanvegaaksturs og aðgerðir stjórnvalda“ - Ólafur Arnar Jónsson hjá Umhverfisstofnun.
- „Hvernig tökum við á utanvegaakstri?“ - Þorsteinn Víglundsson, umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins 4x4.
Umræður að erindum loknum.
Fundurinn verður í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 24. september 2008 kl. 12:00-13:30. Stefnumótin eru opnir fundir um umhverfismál sem efst eru á baugi hverju sinni. Allir velkomnir.
Mynd fengin að láni af ferlir.is.Birt:
22. september 2008
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Úti að aka í náttúru Íslands“, Náttúran.is: 22. september 2008 URL: http://nature.is/d/2008/09/21/uti-ao-aka-i-natturu-islands/ [Skoðað:23. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. september 2008