Að fara í réttir var fastur liður í lífi flestra Íslendinga, fyrir ekki svo löngu síðan. Við réttir hittast sveitungar og fagna því að fé sé komið af fjalli og stutt í ný slátrað. Oft er kátt í réttunum og gaman fyrir börn og fullorðna að upplifa óðagotið og lætin. „Oft er miðað við að réttað sé föstudag eða fimmtudag í 21. viku sumars. Sumstaðar er þó miðað við ákveðinn mánaðardag“*. Á vef Bændasamtakanna er að finna lista yfir hvenær réttað er, hvar á landinu, bæði yfir fjárréttir og stóðréttir.
*Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson.
Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
10. september 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Réttarfréttir“, Náttúran.is: 10. september 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/19/rettarfrettir/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. mars 2007
breytt: 19. apríl 2007

Skilaboð: