Ingibjörg Elsa Björnsdóttir - Curriculum Vitae / Ferilskrá
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, jarðfræðingur, þýðandi og umhverfisefnafræðingur, B.A. B.Sc. M.Sc. M.A.
Erlurimi 8, 800 Selfossi.
Fædd í Edinborg, Skotlandi.þ. 22.05.1966.
Sími: 483 1500
ingibjorg@nature.is
Aðal hæfni:
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir er jarðfræðingur, þýðandi og umhverfisefnafræðingur með 16 ára starfsreynslu, í þýðingum, rannsóknum, ráðgjöf og kennslu á sviði umhverfismála og náttúruvísinda. Hún talar mörg tungumál, m.a. ensku, sænsku og rússnesku. Hún er með M.A. gráðu í þýðingafræði og M.Sc. gráðu í umhverfisefnafræði.
Samantekt helstu starfsreynslu frá apríl 2007:
- Frá 2012 stofnandi og einn af meðeigendum fyrirtækisins Brandugla slf. sem fæst við textagerð og þýðingar.
- Þýðandi og pistlahöfundur hjá Náttúran.is frá 2007.
- Ýmsar viðamiklar hagnýtar þýðingar aðallega fyrir erlendar þýðingarstofur úr ensku, norsku og sænsku, 2007 til 2013.
- Leiðbeinandi hjá Landgræðsluskóla Sameinuðu Þjóðanna sumarið 2008 og sumarið 2009.
- Ýmis skrif, smásögur og ljóðagerð frá 2007.
- Stundakennsla í náttúruvísindum við Fjölbrautaskóla Suðurlands 2007-2009.
Menntun og framhaldsmenntun:
- M.A. í þýðingafræði 2012. Meistararitgerð fjallaði um þýðingu Vladimirs Nabokov á Jevgeníj Onegin eftir Púshkin.
- Master of Science (M.Sc. with distinction) í umhverfisvísindum og umhverfisefnafræði, Chalmers University of Technology (CTU), 1996. Lauk hæsta prófi sem tekið var á meistarastigi við Chalmers háskóla árið 1996.
- Bachelor of science (B.Sc.) í jarðfræði, Háskóla Íslands, 1995.
- Bachelor of Arts (B.A.) í rússnesku og sagnfræði, Háskóla Íslands, 1991.
- Nám í rússnesku og rússneskum fræðum við stofnun slavneskra tungumála, Uppsala Universitet, 1989 – 1990 (Nú Institutionen för moderna språk).
- Dux Scholae frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1985.
Útgefið efni:
- Rökkursónatan, ljóðabók. 2012.
- Dæmisögur Tolstojs. Þýðing á dæmisögum Tolstojs beint úr rússnesku. Jólin 2010.
- Afneitunariðnaðurinn. Þýðing á grein eftir George Monbiot, í Ritinu – tímariti Hugvísindastofnunar, 2009.
- Where water is plentiful. Ritgerð í The International Waterbook, útgefin af Sameinuðu Þjóðunum, 2000.
- Regnskógurinn. Grein birt í Lesbók Morgunblaðsins.
- Umhverfið og ársskýrslurnar. Grein í blaði Gæðastjórnunarfélags Íslands.
- Um vatn í veröldinni. Kafli í bókinni Grænskinnu. Mál og Menning, Reykjavík, 2002.
- Nokkrir punktar um hafið og jarðefnafræði þess, Náttúrufræðingurinn, 2002.
Tungumál:
Íslenska: Móðurmál.
Enska: Tala, skrifa og les reiprennandi.
Rússneska: Tala og les nánast reiprennandi.
Þýska: Les og skrifa vel.
Sænska: Tala, skrifa og les reiprennandi.
Danska: Tala, skrifa og les vel.
Norska: Tala, skrifa og les vel.
Félagsaðild:
- Félagi í Efnafræðifélagi Íslands
- Félagi í Jarðfræðifélagi Íslands
- Félagi í Félagi Umhverfisfræðinga
- Félagi í Rithöfundasambandi Íslands
- Félagi í Bandalagi Þýðenda og túlka
- Varamaður í stjórn Rauða Kross Íslands Árnesingadeild.
Ljósmynd: Ingibjörg Elsa Björnsdóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir „Ingibjörg Elsa Björnsdóttir - Curriculum Vitae / Ferilskrá“, Náttúran.is: 21. mars 2011 URL: http://nature.is/d/2008/06/11/ororaeoa-thyoingar-og-umhverfisraogjof/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 11. júní 2008
breytt: 16. mars 2013