Bílstjórar í Reykjavík hafa lagt undir sig margar gangstéttar sem börn þurfa að nota til að komast til og frá skóla. Þeir nota gangstéttar eins og bílastæði og gangandi börn þurfa að hörfa út á götu. Stöðuverðir Reykjavíkurborgar munu fylgjast sérlega vel með þessum götum næstu daga og skrifa stöðubrotsmiða.

Umhverfis- og samgönguráð hefur hvatt alla borgarbúa sem geta til að ganga, hjóla eða fara með strætó í vinnu og skóla. Það hefur einnig hvatt foreldra ungra barna til þess að ganga með börnum sínum í skólann. Þá má vænta þess að eldri börn gangi í skólann. Börn í Þingholtunum og Vesturbænum hafa á leið til og frá skóla aftur á móti rekið sig á að bifreiðum þekja gangstéttir og þau hafa því þurft að leggja sig í hættu með því að stíga út á götu.

Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs segir að stöðuverðir standi vaktina næstu daga við þær götur sem þessi brot eigi sér oftast stað. Hún segir að sérstaklega verði fylgst með Bárugötu, Ránargötu og Garðastræti í gamla Vesturbænum, og nokkrum götum í Þingholtunum eins og Óðinsgötu og Þórsgötu.

„Ég hvet einnig íbúa til að notfæra sér glaðlegu miðana sem Bílastæðasjóður gaf út í sumar,“ segir Kolbrún og að á þeim standi meðal annars: „Ég er barn og komst ekki“, „Barnavagninn minn á ekki að þurfa að fara út á götu“ „Þetta gengur ekki! Þetta er gangstétt!“. Hægt er að fá miðana í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 10-12.

„Við viljum fá fleiri í okkar lið til að berjast gegn slæmri umgengni á bílum í borginni,“ segir Kolbrún og að stöðuverðir Bílastæðasjóðs og lögregluþjónar leggi stöðubrotsgjald á bifreiðar sem standa ólöglegar.

Birt:
27. ágúst 2008
Höfundur:
Gunnar Hersveinn
Tilvitnun:
Gunnar Hersveinn „Hert eftirlit með bifreiðum á gangstéttum“, Náttúran.is: 27. ágúst 2008 URL: http://nature.is/d/2008/08/27/hert-eftirlit-meo-bifreioum-gangstettum/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 28. ágúst 2008

Skilaboð: