Í kvöld, mánudaginn 27. október kl. 20:00 verður haldinn opinn borgarafundur í Iðnó.

Til hvers?

  • Til að hinn almenni borgari geti komið hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri á óvissutímum.
  • Á síðustu vikum hefur almennum borgurum hvergi gefist kostur á að tjá sig eða spyrja ráðamenn beinna spurninga.
  • Öllum stjórnmálamönnum, seðlabankastjórum og bankastjórum verður boðið að mæta til að svara spurningum Íslendinga, milliliðalaust.
  • Til að almenningur fái skýr skilaboð og sé ekki hafður útundan í umræðunni.
  • Til að leita spurninga og svara um hvað framtíðin ber í skauti sér.

Fyrirkomulag verður þannig:

Fjórir frummælendur hefja umræðuna (5-10 mín hver): Einar Már Guðmundsson rithöfundur, Björg Eva Erlendsdóttir blaðamaður, Lilja Mósesdóttir hagfræðingur og Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur.
Þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og hver sem vill fær þrjár mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja spurninga. Settur verður fundarritari og tekin saman ályktun í lok fundar ef þurfa þykir.
Takmarkaður sætafjöldi – sýnum stuðning með þátttöku – spyrjum og heimtum svör – látum í okkur heyra.

F.h. undirbúningshóps: Gunnar Sigurðsson leikstjóri (gus@mmedia.is - s: 897 7694) og Davíð A. Stefánsson bókmenntafræðingur (david@ljod.is - s: 864 7200).

Birt:
27. október 2008
Höfundur:
Gunnar Sigurðsson
Tilvitnun:
Gunnar Sigurðsson „Opinn borgarafundur um stöðu þjóðarinnar“, Náttúran.is: 27. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/27/opinn-borgarafundur-um-stoou-thjooarinnar/ [Skoðað:18. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: