Orð dagsins 17. janúar
Sífellt fleiri sænsk sveitarfélög segjast gera umhverfiskröfur við innkaup. Hins vegar fækkar þeim sveitarfélögum sem gera það í raun! Á árinu 2004 hafði um 50% sveitarfélaganna komið sér upp sérstökum leiðbeiningum varðandi vistvæn innkaup, en árið 2007 var þetta hlutfall komið í 80%. Hlutfall sveitarfélaga sem taka „alltaf“ eða „yfirleitt“ tillit til umhverfisþátta við innkaup hefur hins vegar lækkað á sama tíma úr 69% í 62%.
Lesið frétt Miljörapporten í gær.
Orð dagsins birtast einnig á vef Staðardagskrá 21 á Íslandi samband.is/dagskra21
Birt:
17. janúar 2008
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Orð dagsins 17. janúar“, Náttúran.is: 17. janúar 2008 URL: http://nature.is/d/2008/01/17/oro-dagsins-17-januar/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.