Styrkur svifryks verður líklega yfir heilsuverndarmörkum við miklar bílaumferðargötur í Reykjavík í dag og næstu daga. Styrkur svifryks mældist 100 míkrógrömm á rúmmetra milli 14:30 og 15:00 í dag við gatnamót Stakkahlíðar og Miklubrautar. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Skilyrði til svifryksmengunar eru oft fyrir hendi í borginni í febrúar og mars: þurrt í veðri og kalt. Upptök mengunar nú má rekja til bílaumferðar, nagladekkja og vindhraða í borginni sem þyrlar upp ryki. Engin ástæða er að aka um á nagladekkjum um þessar mundir. Almenningssamgöngur, minni hraði, naglalaus vetrardekk, hjólreiðar og ganga draga úr mengun svo dæmi séu tekin.

Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri, astma eða lungnasjúkdóma finna fyrir svifryksmengun yfir heilsuverndarmörkum og ættu þeir því að forðast miklar bílaumferðargötur á dögum sem slíkum.

Birt:
3. febrúar 2010
Höfundur:
Gunnar Hersveinn
Tilvitnun:
Gunnar Hersveinn „Styrkur svifryks verður líklega yfir heilsuverndarmörkum“, Náttúran.is: 3. febrúar 2010 URL: http://nature.is/d/2010/02/03/styrkur-svifryks-verdur-liklega-yfir-heilsuverndar/ [Skoðað:8. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 8. febrúar 2010

Skilaboð: