Í dag kl. 15:00 mun forseti Íslands leggja hornstein að einni umdeildustu framkvæmd Íslandssögunnar, Kárahnjúkavirkjun.
Umhverfisverndarsinnar hafa fengið forseta til að leggja með í hornsteininn, sínar skoðanir á framvæmdinni.
Hætta hópurinn og Náttúruvaktin o.fl. standa að þessu tilefni fyrir dagskrá til varnar Náttúru Íslands, á sama tíma og hornsteinninn verður lagður fyrir austan.

Dagskrárdrög:

  • Flutt verður íslensk tónlist af hópi ungra blásara
  • Örstuttur óður til náttúru Íslands, Ásta Þorleifsdóttir
  • Bræðrabþti eftir Stephan G. Stephansson í flutningi Margrétar Vilhjálmdóttur
  • Yfirlýsing náttúruunnenda sem lögð verður í hornstein Kárahnjúkavirkjunar lesin af Kolbrúnu Halldórsdóttir
  • „Fylgd“ eftir Guðmund Böðvarsson, Guðrún Ásmundsdóttir les
  • Andri Snær Magnason les úr verkum sínum
  • Fjöldasöngur og fleira
Birt:
12. maí 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Dagskrá til varnar Náttúru Íslands á Austurvelli í dag kl. 15:00“, Náttúran.is: 12. maí 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/21/dagskr_varnar_isl/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2007
breytt: 16. maí 2007

Skilaboð: