Aðventudagar Sólheima
Aðventudagar Sólheima alla daga til 16. desember
Árlegir aðventudagar Sólheima eru skemmtileg upplifun enda jólastemningin einlæg og munirnir sem framleiddir eru í vinnustofum Sólheima einstakir í sinni röð. Á kertaverkstæðinu má stundum leyfa litlum höndum að spreyta sig í kertagerð og það gleður börnin að geta gert eitthvað sjálf og vilja þá oft gefa sínum nánustu fallega litað kerti.
Staðurinn er fallegur í vetrarham og notalegt að njóta veitinga í Grænu könnunni sem leggur áherslu á lífrænar veitingar. Það gleður semsagt líkama og sál að koma við á Sólheimum þar sem jólaundibúningur einkennist af gleði og góðum anda en ekki stressi og ofnesylu.
Verslunin Vala - listhús, jólamarkaður, kaffi húsið Græna kannan, vinnustofur
Opið alla daga frá 13:00 – 17:00
Sunnudagana 2. og 9. desember verða vinnustofur þó lokaðar vegna Aðventugarðs og litlu jóla íbúa
Laugard. 1. des.
Íþróttaleikhús kl. 13:00
Brúðuleikhúsið Pétur og úlfurinn í umsjá Bernd Ogrodnik
Græna kannan, kl. 15:30
Tónleikar: Ragnhildur Gísladóttir og Þóra Marteinsdóttir
Laugard. 8. des.
Græna kannan, kl. 14:30
Jón Víðis töframaður abra-ka-dabra!
Græna kannan, kl. 15:30
Tónleikar: Sverrir Árnason og Jón Gunnar Biering Margeirsson. Söngur og gítar.
Laugard. 15. des.
Græna kannan, kl. 15:30
Tónleikar: Sólheimakórinn, nemendur í “ Tónmennt hjá Vigdísi “syngja nokkur vel valin lög.
Stjórnandi er Vigdís Garðarsdóttir
Sunnud.16. des.
Græna kannan, kl. 15:30
Tónleikar: Sigtryggur Baldursson og Davíð Þór Jónsson
Miðvikud.19. des.
Sólheimakirkja kl. 17:15
Jólatónleikar Hörpukórsins frá Selfossi undir stjórn Jörg Sondermann
Aðgangur er Ókeypis að öllum viðburðum Aðventudaga
Allir velkomnir
Birt:
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Aðventudagar Sólheima“, Náttúran.is: 29. nóvember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/11/29/aoventudagar-solheima/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.