Í Skaftholti í Gnúpverjahreppi er stundaður lífrænn búskapur. Þar hefur ennfremur verið unnið meðferðarstarf í 27 ár. Skaftholt er sjálfum sér nægt með búsafurðir allar. Þar búa nú um 16 manns en 20 manns koma að starfseminni á einn eða annan hátt. Mikil uppbygging hefur átt sér stað en þeir einstaklingar sem búa í Skaftholti þurfa friðsælt umhverfi og mikilvægur þáttur í meðferðarstarfinu er róandi nærvera Þjórsár og hinnar stórbrotna náttúru allt um kring.

Á laugardaginn verður opinn dagur í Skaftholit en það er árlegur viðburður að bjóða fólki að koma í heimsókn og kynna sér starfsemina. Lífræn grænmetis- og veitingasala og allir eru hjartanlega velkomnir!

Myndin er af bæjarstæði Skaftholts. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
22. ágúst 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Opinn dagur í Skaftholti“, Náttúran.is: 22. ágúst 2007 URL: http://nature.is/d/2007/08/22/opinn-dagur-skaftholti/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: