Þann 28. júní sl. stofnaði hópur áhugafólks félagsskapinn Eldvötn – samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi. 

Framhaldsstofnfundur og um leið fyrsti stóri félagsfundurinn verður haldinn á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 14. nóvember nk. kl. 14:00.

Markmið samtakanna er að vera málsvari umhverfis- og náttúruverndarsjónarmiða, fyrst og fremst.  Þessum markmiðum hyggjast samtökin ná með því að:

  • Efla vitund almennings – einkum íbúa Skaftárhrepps – um  gildi náttúrunnar,  umhverfismál og náttúruvernd.
  • Veita stjórnvöldum og framkvæmdaaðilum gagnrýnið aðhald.

Stofnfélagar eru þeir sem undirrita stefnuyfirlýsingu Eldvatna fyrir árslok 2010.  Félagið er opið öllum lögráða einstaklingum er leggja vilja umhverfis- og náttúruvernd lið, í samræmi við markmið samtakanna og lög þeirra.

Gestir fundarins verða Helgi Björnsson jöklafræðingur og Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur.

Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundinn.  Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á netfangið eldvotn@gmail.com.

Ljósmynd: Skaftárflúðir.

Birt:
10. nóvember 2010
Tilvitnun:
Ólafía Jakobsdóttir „Eldvötn - Ný samtök stofnuð um náttúruvernd í Skaftárhreppi“, Náttúran.is: 10. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/11/10/eldvotn-ny-samtok-stofnud-um-natturuvernd-i-skafta/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 12. nóvember 2010

Skilaboð: