Rúmlega tvö hundruð manns sóttu baráttufund fyrir verndun Jökulsánna í Skagafirði sem haldinn var í félagsheimilinu Árgarði, þriðjudagskvöldið, 28. 11. 2006 og var þar með orðinn húsfyllir. Á fundinum voru flutt erindi um náttúru, virkjanamál og framtíð Skagafjarðar og Sigurður Hansen bóndi og skáld í Kringlumýri flutti ljóð.

Fundurinn samþykkti ályktun um að skora á sveitarstjórnir Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps að gera ekki ráð fyrir virkjunum í Jökulsám Skagafjarðar í tillögum að aðalskipulagi.

 

Að sögn þeirra sem að fundinum stóðu virðist sem mikill áhugi sé á málefninu og mikil andstaða gegn Villinganes- og Skatastaðavirkjun, bæði innan héraðs sem utan. Fólk er ekki tilbúið að fórna náttúru Skagafjarðar. Einnig eru fleiri og fleiri að að átta sig á því að ekkert bendir til þess að virkjanirnar verði til þess að auka atvinnumöguleika í Skagafirði.
-
Myndin er frá fundinum. Ljósmynd: dorimagg.
www.jokulsar.org.

Birt:
30. desember 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Að ræna Héraðsvötnum - Fundur Áhugahóps um verndun Jökulsánna í Skagafirði vel sóttur“, Náttúran.is: 30. desember 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/16/fundur_verndun_jokulsanna/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. mars 2007
breytt: 30. apríl 2007

Skilaboð: