Dagana 9.-10. ágúst nk. stendur Vanadís fyrir grunnnámskeið um sjamanisma fyrir 21.öldina. Dvalið rúman sólarhring í faðmi fjalla og skóga innst í Fnjóskadal, þar sem rýnt verður í hin fornu fræði og tengslin við náttúruna og okkur sjálf dýpkuð.

Seiður eða sjamanismi hefur verið mikilvægur hluti daglegs lífs, menningar og siða kvenna og karla um allan heim frá örófi alda. Enn er sjamanismi lifandi meðal frumbyggja heimsins, í Ástralíu, Ameríku, Asíu, Afríku og á Norðurhjara Evrópu, meðal Sama. Þörfin fyrir að blása lífi í glóðir þessa lífsforms er að vakna meðal íbúa vestrænna iðn- og markaðsríkja og þá kemur í ljós að það lifir enn í glóðunum. Ef kafað er í menningararfinn finnum við minni seiðsins bæði í keltneskum og norrænum rótum okkar.

Á námskeiðinu munum við fræðast lítillega um þann sjamanisma sem er lifandi í dag og sögu hans í menningu okkar sjálfra. Aðaláherslan er þó á verkefni sem tengja okkur við náttúruna og veruleikann. Við lærum m.a. um heimana þrjá og vættir þeirra, máttardýr og aðrar hamingjur, förum í draumferðir, sköpum og ræðum saman til að blása lífi í minni völvunnar og vitkans sem í okkur býr, vekja seiðinn úr dvala.

Við dveljum í faðmi fjallanna innst í Fnjóskadal, gistum við einfaldar aðstæður í litlum bústað. Fæði einfalt og létt. Unnið er að hluta inni í bústaðnum en ef veður leyfir verðum við mikið úti við. Þátttakendafjöldi er takmarkaður við átta.

Leiðbeinandi er Valgerður H. Bjarnadóttir. Nánari upplýsingar í síma 895 3319 eða vanadis@vanadis.is.

Birt:
28. júlí 2010
Tilvitnun:
Valgerður H. Bjarnadóttir „Heiður - seið hún kunni“, Náttúran.is: 28. júlí 2010 URL: http://nature.is/d/2010/07/28/heidur-seid-hun-kunni/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: