Laugardaginn 23. febrúar næstkomandi efnir Framtíðarlandið til Reykjanesþings, „Reykjanes: Suðupottur tækifæra", á veitingastaðnum Ránni, Hafnargötu 19 í Reykjanesbæ. Þar verður stefnt saman hugmyndaríku fólki úr atvinnulífi, menningu og nýsköpun sem á það sameiginlegt að láta sig atvinnumál og framtíð svæðisins varða.
Framtíðarlandið hefur áður haldið málþing þar sem sjónum er beint að einum ákveðnum landshluta en í nóvember stóð félagið fyrir einu slíku á Ísafirði undir yfirskriftinni „Vestfirðir á teikniborðinu". Það þótti heppnast einkar vel og er von á skýrslu með helstu niðurstöðum þess þings.
Á Reykjanesþingi verða fjölbreytt framsöguerindi eins og sjá má af dagskrá þingsins hér að neðan en meðal þátttakenda eru frumkvöðlar af Suðurnesjum, listafólk, atvinnurekendur, stjórnmálamenn, skólafólk og athafnamenn. Framtíðarlandið vonast til þess að niðurstöður þingsins geti orðið mikilvægt framlag til áframhaldandi, uppbyggilegrar umræðu um nýsköpun í atvinnulífi, menningu og búsetu á Reykjanesi.
Reykjanesþing er öllum opið en mælst er til þess að gestir láti vita af komu sinni á netfangið framtidarlandid@framtidarlandid.is

Dagskrá þingsins:

10.00 Þingsetning

Skapandi samfélag
10.20 Hjálmar Árnason, Keilir – Atlantic Center of Excellence: Herstöð breytt í þekkingarþorp
10.45 Hallur Helgason, kvikmyndaframleiðandi: Kvikmyndaver á Keflavíkurflugvelli
11.10 Ragnheiður Eiríksdóttir, tónlistarmaður: Menning á Vellinum
11.35 Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri og einn stofnanda ORF Líftækni:
ORF Líftækni – Græn smiðja

12.00 Hádegishressing. Léttar veitingar verða til sölu og kaffi í boði Kaffitárs

Árið 2020: Frítími, fjármál og búseta.
13.00 Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar: Reykjanes – valkostur við höfuðborgarsvæðið
13.25 Reynir Ingibjartsson, stjórnarmaður í Reykjanesfólkvangi: Eldfjallagarður á Reykjanesi – ný tækifæri í ferðamennsku og útivist
13.50 Anna Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Bláa lónsins: Bláa lónið – stöðug uppspretta nýrra tækifæra
14.15 Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Kadeco – Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar:
Reykjanes – miðpunktur alheimsins

14.40 Kaffi í boði Kaffitárs

15.00 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir stýrir pallborðsumræðum:
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, doktorsnemi í heimspeki við Háskóla Íslands
Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum
Magnús Ingi Óskarsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Calidris
Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar

16.00 Þingslit

Myndin er af Kleifarvatni. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
21. febrúar 2008
Höfundur:
Framtíðarlandið
Tilvitnun:
Framtíðarlandið „Suðupottur tækifæranna - Reykjanesþing“, Náttúran.is: 21. febrúar 2008 URL: http://nature.is/d/2008/02/21/suoupottur-taekifaeranna-reykjanesthing/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: