Á dögunum stóðu Samband garðyrkjumanna og Tækniskólinn fyrir kynningu í Bændahöllinni í Reykjavík á verkefnum nemenda við Tækniskólann. Verkefni nemendanna var að hanna lýsingu í 1420 m2 gróðurhús miðað við gefnar ræktunarforsendur, en fjórir hópar unnu að fjórum mismunandi lausnum. Afar áhugaverðar niðurstöður fengust úr þessum verkefnum sem gefa vísbendingar um að raforkukostnaður garðyrkjubænda geti lækkað ört á komandi misserum.

Helgi Baldursson, verkefnisstjóri hjá Tækniskólanum, segir að telja megi verkefnið sérlega áhugavert í því ljósi að um þessar mundir hefur þjóðfélagsumræðan mikið snúist um hvernig hægt sé að auka atvinnutækifæri í landbúnaði og nýsköpun með hagnýtingu innlendra orkugjafa og jarðhita.

Að þessu sinni var lagt fyrir verkefni sem var ólíkt öðrum verkefnum fram til þessa. Nemendum var sem fyrr segir skipt í 4 hópa og fengu þeir frjálsar hendur með lausn verkefnisins, svo fremi sem það uppfyllti kröfulýsinguna. Hún fól í sér að hanna ætti  lýsingu fyrir salatræktun í fyrirhugað nýtt gróðurhús hjá Lambhaga í Mosfellsbæ. Einn hópurinn studdist við hefðbundna lýsingu með háþrýstum natríumljósgjöfum, annar hópur lagði til lausn með ljósgjafa sem er blanda af háþrýstum natríum og metal highlight, sá þriðji studdist við plasma tækni (sulphur) sem er tiltölulega ný tegund af lampa sem m.a. geimferðastofnunin NASA hefur skoðað til þess að geta hafið framleiðslu á grænmeti úti í geimnum. Fjórði hópurinn vann með ljóstvista eða LED lýsingu. Verkefnin byggðust öll á kerfisbundinni söfnun upplýsinga af netinu m.a. með vísun í tilraunir með áðurnefnda lampa sem hafa þessa tilteknu eiginleika og hvernig unnt er að hagnýta þá við íslenskar aðstæður.

„Vísbendingarnar voru svo sláandi að væntanlega verður tafarlaust ráðist í ræktunartilraunir, í formi mælanlegrar grænmetisuppskeru, svo hægt verði að sannreyna þessar sterku vísbendingar,“ segir Helgi Baldursson.

Myndin er af Þórði á Akri í gróðurhúsi sínu. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
12. maí 2009
Höfundur:
Bændablaðið
Uppruni:
Bændablaðið
Tilvitnun:
Bændablaðið „Framtíðarlausn í lýsingu gróðurhúsa?“, Náttúran.is: 12. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/12/framtioarlausn-i-lysingu-groourhusa/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 9. febrúar 2011

Skilaboð: