Á Degi umhverfisins, sl. sunnudag, endurnýjaði Sveitarfélagið Árborg samning sinn við Fuglavernd um umsjón og mótun Fuglafriðlandsins í Flóa.

Fuglafriðlandið er orðið þekkt hjá fuglaskoðurum víðsvegar um heiminn og á sumrin er stöðugur straumur fuglaáhugamanna sem gera sér ferð þangað að njóta fuglanna og umhverfisins.

Hafist var handa við gerð fuglaskoðunarskýlis fyrir nokkrum árum og var lokið við það í fyrra. Jóhann Óli vígði skýlið formlega við athöfnina á sunnudag.

Framtíðaráform fyrir Friðlandið er í mótun og er stefnt að því að bjóða  þar uppá fuglaskoðun fyrir almenning, fuglaljósmyndara og fuglaáhugafólk.  Jafnfram verður haldið áfram að endurheimta votlendi á svæðinu, en endurheimtuaðgerðir hófust árið 1997.  Þær hafa tekist mjög vel; fuglalíf hefur tekið kipp á endurheimtu svæðunum og sem dæmi má nefna, að lómavarp hefur margfaldast á þessum tíma.

Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri og Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar, skrifaðu undir samninginn. Samningur um samstarf í Fuglafriðlandi var fyrst undirritaður á Eyrarbakka 1997.

Ljósmynd: Lóuungi, Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
28. apríl 2010
Höfundur:
Sunnlenska
Tilvitnun:
Sunnlenska „Samningur um Fuglafriðlandið endurnýjaður“, Náttúran.is: 28. apríl 2010 URL: http://nature.is/d/2010/04/28/samningur-um-fuglafridlandid-endurnyjadur/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: