Handverksmaður ársins 2007
Í gær var handverksmaður ársins valin úr hópi þátttakenda á Handverkshátíðinni í Hrafnagili. Kynning á Handverksmanni ársins hljómar á þessa lund:
- Handverksmaður ársins er landnámsmaður á vettvangi þjóðlegs íslensks handverks.
- Hann er frumkvöðull sem ber mikla virðingu fyrir viðfangsefni sína.
- Hann er óþreytandi talsmaður þess að við varðveitum þennan merka menningararf og skilum honum óbrotnum til komandi kynslóða.
- Hann er boðberi hugsjóna og spyr aldrei um verkalaun að kvöldi en leggur allt í sölurnar fyrir hugsjónir sínar.
- Hann leitar þekkingar hvar sem hana er að finna.
- Eins og aðrir hugsjónamenn hefur hann oft talað fyrir daufum eyrum.
- Að öllum öðrum ólöstuðum hefur Handverksmaður ársins með sífelldum brýningum og hvatningu þokað Handverkshátíðinni í Eyjafjarðarsveit nær því markmiði að geta talist vettvangur fyrir sýningu og kynningu á handverki sem stenst þær faglegu kröfur um vinnubrögð, verk- og efnisþekkingu sem gera þarf.
- Handverksmaður ársins er Guðrún Hadda Bjarnadóttir.
Á síðasta ári var útskurðarmeistarinn Ragnhildur Magnúsdóttir kosin Handverksmaður ársins á Handverkshátíðinni í Hrafnagili.
Efri myndin er af Guðrúnu Höddu við vefstólinn og sú neðri af Rönku í Kotinu, en svo er Ragnhildur nefnd. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
13. ágúst 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Handverksmaður ársins 2007“, Náttúran.is: 13. ágúst 2007 URL: http://nature.is/d/2007/08/13/handverksmaur-rsins/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.