Klár í kreppu?
Hitt Húsið, Neytendasamtökin og Reykjavíkurborg standa fyrir ókeypis fjármálafræðslu fyrir ungt fólk, 16-25 ára,í Hinu Húsinu Pósthússtræti. Námskeiðið er ókeypis!
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera færir um að stjórna eigin fjármálum á ábyrgan hátt. Allir þátttakendur fá í hendur USB lykil sem hefur að geyma persónulegt bókhaldsforrit og fjármálafræðslu á mannamáli.
Námskeiðið er fyrir þá sem:
- Vilja öðlast skilning og stjórn á eigin fjármálum.
- Vilja vera vel upplýstir og meðvitaðir neytendur.
- Vilja losna við yfirdrátt og neyslulán.
- Vilja öðlast skilning á öllum helstu hugtökum fjármálaheimsins.
- Vilja læra að gera fjárhagsáætlun og að reikna út launin sín.
- Vilja eignast USB lykil sem hefur að geyma persónulegt bókhaldsforrit og almenna fjármálafræðslu á mannamáli.
Vikulegir fundir í einn mánuð:
Þriðjudaginn 11. nóvember kl. 17:00-19:00Þriðjudaginn 18. nóvember kl. 17:00-19:00
Þriðjudaginn 25. nóvember kl. 17:00-19:00
Þriðjudaginn 2. desember kl. 17:00-19:00
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri! Hægt er að skrá sig á hitthusid.is eða í síma: 695-5103
Skráðu þig sem fyrst þar sem aðgangsfjöldi er takmarkaður
Birt:
8. nóvember 2008
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Klár í kreppu?“, Náttúran.is: 8. nóvember 2008 URL: http://nature.is/d/2008/11/08/klar-i-kreppu/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.