Útimarkaður Varmársamtakanna á laugardaginn
Árlegur útimarkaður Varmársamtakanna í Álafosskvos er nú að taka á sig skýra mynd. Allt virðist stefna í metþátttöku söluaðila og fjölbreytt vöruúrval. Markaðurinn sem haldinn er í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninum heima, hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 16:00 laugardaginn 29. ágúst nk.
Að venju verður boðið upp á ilmandi og gómsætar veitingar í Kaffi Kvos og tónlistarmenn munu skemmta gestum með hugljúfum tónum. Af vörum sem gestum hátíðarinnar verður boðið upp á má nefna:
- Lifrænt ræktaðar kryddjurtir frá Engi
- Heimalagaðar sultur og suðræn kryddjurtamauk
- Varmárbrauð frá Grímsbæ
- Rósir í öllum regnbogans litum frá Laugabóli
- Birki- og taðreiktur silungur frá Útey
- Steinbítur frá Harðfiskverkun Finnboga á Ísafirði
- Silungapaté og rússneskt matarmauk a la Omar og Olga
- Lífrænt ræktaðir tómatar og grænmeti frá: Garðyrkjustöðinni Akri, Garðyrkjustöðinni Sunnu Sólheimum og Garðyrkjustöðinni Hæðarend.
- Þykkvabæjarkartöflur
- Grænmeti frá Garðagróðri
- Salat frá Mosskógum
- Heimabakaðar kleinur, kryddbrauð og annað bakkelsi frá Fríðu og Huldubergi
- Heilsukrydd og ídýfur
Auk þess: Heklaðir treflar frá Toggu, taupbleiur frá Kindaknúsi, stelpuföt frá Dóru og allt milli himins og jarðar í Álafossbúðinni. Hannunnir hnífar frá Palla hnífasmið.
Ilmandi heitar vöfflur með rjóma og gómsætar veitingar í Kaffi Kvos.
Lifandi tónlist - harmonikuleikur.
Nánar á bloggsíðu Varmársamtakanna.
Mynd frá útimarkaðinum í fyrra, af vef Varmársamtakanna.
Birt:
Tilvitnun:
Sigrún Pálsdóttir „Útimarkaður Varmársamtakanna á laugardaginn“, Náttúran.is: 26. ágúst 2009 URL: http://nature.is/d/2009/08/26/utimarkaour-varmarsamtakanna-laugardaginn/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.