Snyrtivörulínan Kicks fær Svansvottun
Orð dagsins 20. nóvember 2008.
Í gær var tilkynnt að sænski snyrtivöruframleiðandinn Kicks hefði fengið vottun Norræna Svansins á heila snyrtivörulínu. Þetta þykir marka tímamót hvað varðar framboð á umhverfisvænum snyrtivörum, þar sem nú er hægt að kaupa heila línu af Svansmerktum húð- og hárvörur til ólíkra nota frá einum og sama framleiðandanum. Til að fá Svaninn þurfa snyrtivörur m.a. að brotna hratt niður í vatni, þannig að þær skaði ekki vatnalífverur, standast strangar kröfur um innihald ofnæmisvaldandi og heilsuskaðlegra efna á borð við ilmefni og rotvarnarefni, auk þess að standast kröfur um notagildi og um visthæfar umbúðir.
Lesið frétt á heimasíðu Svansins í Svíþjóð í gær.
Birt:
20. nóvember 2008
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Snyrtivörulínan Kicks fær Svansvottun“, Náttúran.is: 20. nóvember 2008 URL: http://nature.is/d/2008/11/23/snyrtivorulinan-kicks-svansvottuo/ [Skoðað:26. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 23. nóvember 2008