Menning á sjálfbærum áfangastað
Markaðsráð Hríseyjar stendur fyrir málþinginu ,,Menning á sjálfbærum áfangastað” í Hrísey laugardaginn 23. maí kl. 10:30 – 15:00. Á undanförnum árum hefur verið unnið að því að skapa sjálfbært samfélag í Hrísey. Frá upphafi verkefnisins hefur verið hugað að því hvernig hægt sé að nýta verkefnið til atvinnusköpunar auk þess að koma á framfæri sérstöðu svæðisins. Hefur í því sambandi helst verið litið til ferðaþjónustunnar. Á málþinginu verður skoðuð uppbygging menningarstarfs á landsbyggðinni í tengslum við ferðaþjónustu og sjálfbært samfélag.
Ferjan fer frá Ársskógssandi kl 09:30. Frá Akureyri eru 35 km á Árskógssand sem er um 25. mín akstur. Staðfesting á þátttöku gildir sem greiðsla í ferjuna. Fulltrúi Markaðsráðs Hríseyjar tekur á móti gestum á bryggjunni og fylgir þeim í Íþróttamiðstöðina þar sem málþingið er haldið. Farið verður með ferju til baka kl. 15:00.
Dagskrá:
| kl. 09:30 | Ferja fer til Hríseyjar | 
| kl. 09:45 | Komið til Hríseyjar | 
| kl. 10.30 | Setning málþings | 
| kl. 10:40 |  ,,Þróun og uppbygging menningarstarfs á landsbyggðinni” Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða  | 
| kl.11:00 | ,,Sjálfbær áfangastaður ? Hvað er nú það ?”  Stefán Gíslason, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi  | 
| kl.11:20 | ,,Uppbygging ferðamannastaða með sjálfbærni að leiðarljósi” Guðrún Bergmann  | 
| kl.11:40 | Sýn listamanns í uppbyggingu skapandi samfélags á landsbyggðinni | 
| kl.12:00 | Hádegishlé – súpa, brauð og göngutúr | 
| kl.13:00 | Umræður og fyrirspurnir | 
| kl.13:30 | Umræðuhópar – skipt í fjóra hópa sem fyrirlesarar leiða. | 
| kl.14:00 | Kynning á umræðum í hópum | 
| kl.14:30 | Málþingi slitið | 
| kl.15:00 | Ferja fer frá Hrísey | 
Skráning fer fram á netfanginu lindamar@internet.is
Þátttökugjald er kr. 2.000, innifalið í því er ferja fram og til baka og léttur hádegisverður.
Mynd frá Hrísey, af vef Ferðamálastofu.
Birt:
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „Menning á sjálfbærum áfangastað“, Náttúran.is: 7. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/07/menning-sjalfbaerum-afangastao/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
		
