Líffræðilegur fjölbreytileiki á í vök að verjast á Norðurlöndum. Svæði með verðmætri náttúru hafa minnkað samhliða því að landbúnaður, samgöngukerfi og byggð breiða úr sér. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu sem Norræna ráðherranefndin hefur látið gera.

Í skýrslunni er bent á að dregið hafi hratt úr líffræðilegum fjölbreytileika á Norðurlöndum síðan 1990. Þessi óheillaþróun hefur jafnframt í för með sér að Norðurlönd ná varla alþjóðlegum markmiðum um að stöðva rþrnun líffræðilegs fjölbreytileika fyrir árið 2010, segir Bo Normander verkefnastjóri við dönsku Umhverfisrannsóknastofnunina við Árósaháskóla.

Niðurstaða skýrslunnar er að aðgerða sé þörf og einnig endurskoðun á náttúruvernd á Norðurlöndum ef takast á að snúa þróuninnni við.

Frétt á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar.

State of biodiversity in the Nordic countries (pdf-skjal).

Mynd: Af vef umhverfisráðuneytisins, úr umræddri skýrslu.
Birt:
16. mars 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Dregur úr líffræðilegum fjölbreytileika á Norðurlöndum“, Náttúran.is: 16. mars 2009 URL: http://nature.is/d/2009/03/16/dregur-ur-liffraeoilegum-fjolbreytileika-norourlon/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: