Um mitt árið 2009 höfðu borgaryfirvöld í Stokkhólmi náð því marki að 97% ökutækja í eigu borgarinnar voru umhverfisvænir. Borgaryfirvöld í Stokkhólmi höfðu sett sér það markmið að árið 2010 yrðu öll ökutæki í eigu borgainnar umhverfisvæn. Flest ökutæki sem borgin hefur keypt eru metanbílar eða 56%, 19% E85, 16% rafmagnsbílar og 7% af sparneytnum dísil og bensínbílum.

Sömu sögu er að segja frá öðrum borgum og bæjum í Svíþjóð, mikil vakning í þessum málum og markmiðin á hreinu. Þess má geta að borgaryfirvöld í Gautaborg eru í harðri samkeppni við Stokkhólm um að ná 100% markinu.
Birt:
15. desember 2009
Höfundur:
Metan
Uppruni:
Metan hf
Tilvitnun:
Metan „Stokkhólmsborg - 100% umhverfisvænir bílar“, Náttúran.is: 15. desember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/12/15/stokkholmsborg-100-umhverfisvaenir-bilar/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: