Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni. Eyrarrósin hefur verið afhent þrisvar sinnum og hafa eftirtaldir hlotið viðurkenninguna: Þjóðlagahátíðin á Siglufirði árið 2005, LungA – Listahátíð ungs fólks á Austurlandi árið 2006 og Strandagaldur árið 2007.

  • Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda um Eyrarrósina 2008
  • Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.500.000 kr. og verðlaunagrip til eignar
  • Viðurkenningin verður afhent í ársbyrjun 2008 á Bessastöðum
  • Verkefnið sem hlýtur viðurkenninguna fær sérstaka kynningu í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 2008
  • Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú

Umsóknum skal fylgja:

Lýsing á verkefninu
Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu; umfangi þess, sögu og markmiðum.

Tíma- og verkáætlun
Gerð skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins og áformum á árinu 2008. Skilyrði er að verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum.

Upplýsingar um aðstandendur
Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því.

Fjárhagsáætlun
Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári. Uppgjör ársins 2006 fylgi umsókn.

  • Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar
    verður hún ekki tekin til greina
  • Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn,
    tímabundið verkefni eða menningarhátíð
  • Umsóknarfrestur er til 19. nóvember 2007
    og verður öllum umsóknum svarað
  • Viðurkenningin verður veitt í janúar 2008
  • Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík,
    pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar Eyrarrósin.

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík í síma 561 2444, hrefna@artfest.is www.listahatid.is.

Myndin er af Eyarrósabreyðu [Epilobium latifolium] sunnan við Nyrðri Hágöngur á Sprengisandi, tekin þ. 4. ágúst 2006. Ljósmynd: Árni Tryggvason.

Birt:
18. október 2007
Tilvitnun:
Listahátíð í Reykjavík „Eyrarrósin - Auglýst eftir umsóknum“, Náttúran.is: 18. október 2007 URL: http://nature.is/d/2007/10/17/eyarrsin-auglst-eftir-umsknum/ [Skoðað:2. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 17. október 2007
breytt: 18. október 2007

Skilaboð: