Áskorun frá Landvernd
Landvernd skorar á Hitaveitu Suðurnesja vegna Múlavirkjunar.
Orkusamningur verði endurskoðaður ellegar sagt upp
Með ákvörðun sinni um að gera tilteknar breytingar á virkjuninni braut Múlavirkjunar ehf. gegn ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og í ferlinu hefur e.t.v. einnig verið brotið á fleiri lögum. Nánari skoðun mun væntanlega leiða það í ljós. Landvernd telur orkukaup Hitaveitu Suðurnesja ekki samræmast umhverfisstefnu fyrirtækisins en þar segir m.a. að Hitaveita Suðurnesja muni „fylgja gildandi lögum og reglum á sviði umhverfismála“ og að fyrirtækið eigi að vera „öðrum til fyrirmyndar og eftirbreytni í meðferð á umhverfinu“.
Samningur Múlavirkjunar ehf. við Hitaveitu Suðurnesja stendur í vegi fyrir því að tilhlýðilegar úrbætur verði gerðar á virkjuninni. Landvernd hefur sent Hitaveitu Suðurnesja áskorun um að segja samninginum upp ellegar beita sér fyrir því að á honum verði gerðar breytingar svo Múlavirkjun ehf. geti lagfært virkjunina þannig að lífríki Baulárvallavatns verði ekki ógnað.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Áskorun frá Landvernd“, Náttúran.is: 20. september 2007 URL: http://nature.is/d/2007/09/21/skorun-fr-landvernd/ [Skoðað:23. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. september 2007
breytt: 28. janúar 2008