Græna netið stendur fyrir fundi á laugardaginn 1. mars hann verður haldinn á veitingahúsinu Sólon í Bankastrætinu, efri hæð, og hefst kl. 11:00 árdegis.

Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði, Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi og  Bergur Sigurðsson framkvæmdastjóri Landverndar eru málshefjendur á spjallfundi Græna netsins laugardagsmorguninn 1. mars um Olíuhreinsistöð – nútímakukl á Vestfjörðum?
 
Eftir fundi fyrir vestan um síðustu helgi og tillögur Framtíðarlandsins um atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum eru áformin um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum í brennidepli. Dofri hefur skrifað um áformin hvassar greinar sem hafa vakið ýmis viðbrögð vestra, Halldór er svæðinu öllu kunnugur sem bæjarstjóri, er höfundur hugmyndanna um „stóriðjulausa Vestfirði" en í seinni tíð hallur undir stöðvaráformin, og Bergur er ný kominn úr leiðangri til Noregs þar sem hann og Ómar Ragnarsson skoðuðu olíuhreinsistöðvar og nærleiggjka ndi byggðir.
 
Það má búast við góðum erindum og  fjörugum umræðum á fundi Græna netsins á laugardaginn – Allir velkomnir.

Grafík: Mengun á Vestfjörðum, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.
Birt:
29. febrúar 2008
Höfundur:
Græna netið
Tilvitnun:
Græna netið „Olíuhreinsunarstöð - nútímakukl á Vestfjörðum“, Náttúran.is: 29. febrúar 2008 URL: http://nature.is/d/2008/02/29/oliuhreinsunarstoo-nutimakukl-vestfjoroum/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: