Neytendur vilja umhverfisvæn fyrirtæki
Meirihluti neytenda vill að fyrirtæki beiti sér meira í umhverfisvernd. Niðurstaða Internet-könnunar sem 28.000 manns í 51 landi svöruðu er að umhverfisstefna fyrirtækja hefur sífellt meiri áhrif á kauphegðun neytenda.
51% svarenda töldu það mjög mikilvægt að fyrirtæki legðu sitt af mörkum við að bæta umhverfið og 36% töldu það nokkuð mikilvægt.
Aðspurðir hvernig þeir vildu leggja sitt af mörkum til umhverfismála vildu 68% svarenda kaupa „grænni“ vörur á meðan 13% vildu helst gefa peninga til málefnisins. Ekki var spurt hversu mikið meira þeir sem kaupa vildu umhverfisvænni vörur væru til í að borga fyrir slíkar vörur.
Í könnuninni var einnig spurt með hvaða hætti fólk teldi að fyrirtæki ættu að leggja sitt af mörkum við að hægja á loftslagsbreytingum. 40% svarenda töldu að stjórnvöld ættu að takmarka gróðurhúsalofttegundalosun fyrirtækja, 38% vildu að stjórnvöld tækju af skarið í þróun bíla sem losa lítið af gróðurhúsalofttegundum og 37% sögðu að endurvinna ætti meiri úrgang. Velja mátti meira en einn svarmöguleika.
Reuters sagði frá.
Birt:
Tilvitnun:
Viðskiptablaðið „Neytendur vilja umhverfisvæn fyrirtæki“, Náttúran.is: 26. september 2008 URL: http://nature.is/d/2008/09/26/neytendur-vilja-umhverfisvaen-fyrirtaeki/ [Skoðað:22. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 25. febrúar 2014