Frá og með 1. júní nk. býður Skógrækt ríkisins gestum þjóðskóganna upp á skemmtilega viðbót við kyrrðina, fuglasönginn og þytinn í trjánum. Við stíga í skógunum standa nú staurar með símanúmeri sem hægt er að hringja í og hlusta á fróðleik eða skemmtun tengda umhverfinu.

 

"Hugmyndin er að veita gestum þjóðskóganna upplýsingar um skóginn sem þeir eru staddir í, án þess að þeir þurfi að fá með sér leiðsögumann eða lesa bækling," segir Esther Ösp Gunnarsdóttir, kynningarstjóri Skógræktar ríkisins. "Í skógunum er búið að koma fyrir stöplum með símanúmerum. Þegar gengið er fram á staur er hægt að hringja í númerið og fá upplýsingarnar lesnar fyrir sig." Hver lestur er u.þ.b. 2-4 mínútur og gjaldið er það sama og í venjuleg símanúmer.´

 

"Við byrjum með nokkra staura í hverjum landsfjórðungi í sumar en þeim kemur svo til með að fjölga strax næsta sumar," segir Esther.

Birt:
29. maí 2009
Tilvitnun:
Skógrækt ríkisins „Hringdu í skóginn“, Náttúran.is: 29. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/29/hringdu-i-skoginn/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: