Náttúrulegt - Blómadagur á Skólavörðustíg í dag
Verslunareigendur við Skólavörðustíg halda hátíð í dag frá kl. 12:00 - 16:00 undir yfirskriftinni „náttúrulegt.“ Gefin verða blóm og ávextir í tilefni dagsins. Verslunin Yggdrasill heldur upp á 20 ára afmæli sitt en verslunin hefur frá upphafi selt lífrænt ræktaðar vörur og náttúrulegar matvörur, hreinsiefni o.fl. Í fyrra flutti Yggdrasill af Kárastíg á Skólavörðustíginn þar sem verslunin dafnar vel í góðum félagsskap annarra verslana og gallería
Myndin er af villtum bláklukkum [Campanula rotundifolia] í Borgarfirði. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
3. júní 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Náttúrulegt - Blómadagur á Skólavörðustíg í dag“, Náttúran.is: 3. júní 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/21/blomadag_skolavordust/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2007
breytt: 2. júní 2007