Yfirlýsing nátturuverndarsamtaka
Eftirtalin samtök lýsa vaný óknun á ómálefnalegri auglýsingaherferð fyrirtækja á Suðurnesjum gegn ákvörðun umhverfisráðherra um Suðvesturlínur. Álver í Helguvík með allt að 360 þúsund tonna ársframleiðslu með tilheyrandi orkuöflun og umhverfisáhrifum er ekki einkamál Suðurnesjamanna. Ekki er útséð með að hægt verði að útvega alla þá orku sem fyrirtækið telur sig þurfa,auk þess sem orkuþörf Norðuráls í Helguvík hefur verið ranglega metin í opinberum gögnum.
- Álverið myndi taka til sín nær alla háhitaorku sem fyrirséð er að aflað verði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, auk virkjana í neðri Þjórsá.
- Jarðvarmavirkjanir sem álverið þarf mundu auka á brennisteinsmengun á höfuðborgarsvæðinu en hún fer nú þegar yfir heilbrigðismörk við ákveðnar aðstæður.
- Línulagnir hefðu víða áhrif, m.a. á vatnsverndarsvæði höfuðborgarbúa.
- Með Urriðafossvirkjun væri framtíð eins stærsta villta laxastofns Íslands stefnt í voða - en sá stofn býr í Þjórsá.
- Krafa fyrirtækja á Suðurnesjum um orku til álvers í Helguvík er á við heila Kárahnjúkavirkjun á 100% láni á ábyrgð orkufyrirtækja í eigu þjóðarinnar.
Íslendingar hafa horft upp á skammsýni, græðgi og heimsku í aðdraganda hruns hins íslenska efnahagskerfis. Stafar það af fúski, agaleysi og veikburða stjórnmála- og eftirlitsstofnunum gagnvart yfirgangi hagsmunahópa. Herferð fyrirtækja á Suðurnesjum í þágu alþjóðlegra stórfyrirtækja er ábyrgðarlaus og ómálefnalegt innlegg í umræðuna.
Náttúruverndarsamtök Vestfjarða
Náttúruverndarsamtök Austurlands (NAUST)
SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi
Sól á Suðurnesjum
Sól á Suðurlandi
Framtíðarlandið
Sól í Straumi
Náttúruverndarsamtök Suðurlands
Náttúruverndarsamtök Íslands
Raflínur og álver. Ljósmynd: Árni Tryggvason
Birt:
Uppruni:
Náttúruverndarsamtök VestfjarðaNáttúruverndarsamtök Íslands
Sól í Straumi
SUNN - Samtök um náttúruvernd Norðurlands
Náttúruverndarsamtök Austurlands
Náttúruverndarsamtök Suðurlands
Framtíðarlandið
Sól á Suðurlandi
Sól á Suðurnesjum
Tilvitnun:
Náttúruverndarsamtök Íslands „Yfirlýsing nátturuverndarsamtaka“, Náttúran.is: 17. nóvember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/11/17/yfirlysing-natturuverndarsamtaka/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.