Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Alls bárust 63 tilnefningar til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár, þar af átta frá Íslandi. Í ár verða verðlaunin veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur stuðlað að góðu fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og sem hefur aukið skilning á þýðingu náttúrunnar. Verðlaunin, sem eru 350.000 danskar krónur, verða nú veitt í fimmtánda sinn.
Eftirtaldar tilnefningar bárust frá Íslandi:
- Ferðafélag Íslands
- Landvernd
- Landvarðafélagið
- Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
- Ari Trausti Guðmundsson.
- Ásta Arnardóttir
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Magnús Magnússon
Dómnefnd ákveður hver hlýtur verðlaunin og tilkynnir það á fundi sem haldinn verður á Íslandi í byrjun október. Verðlaunin verða síðan afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi í lok október. Kolbrún Halldórsdóttir er ný skipaður formaður dómnefndarinnar og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, formaður SUNN, situr einnig í dómnefndinni.
Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru ein af fjórum verðlaunum Norðurlandaráðs, önnur verðlaun eru veitt fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist. Íslenska fyrirtækið Marorka hlaut umhverfisverðlaunin í fyrra.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs“, Náttúran.is: 30. júní 2009 URL: http://nature.is/d/2009/06/30/tilnefningar-til-umhverfisverolauna-norourlandarao/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.